Okkur er boðið í heimsókn til stelpnanna í Víking á þriðjudaginn og er það eins gott því það verður ólíft í Risanum sökum kulda. Við spilum inni í íþróttahúsinu við Réttarholtsskóla við Réttarholtsveg,sem er á milli Sogavegar og Bústaðarvegar. Hópnum verður skipt í tvennt og mætir annar hópurinn kl. 5 - 6 en hinn 6 - 7. Okkur verður svo boðið uppá piparkökur, kakó og mandarínur á eftir. Gott er að vera mættar allavega 10 mín. fyrir æfingu því það er aðstaða fyrir ykkur til að skipta um föt (eins og í Víðistaðaskóla) og ég kem með FH- treyjurnar sem þið spilið í.
Þær sem mæta kl. 5 - 6 eru:
Ásta Kristín, Embla Guðný, Agneta Ýr, Sunna, Thelma Lind, Ester Glóey, Heiðdís, Hera Dís, Karen Björg, Elísabet Eva, Hugrún Freyja, Perla Dís
Þær sem mæta kl. 6 - 7 eru:
Ásdís Helga, Nína Hildur, Sara Rún, Margréta Helga, Laufey, Brynhildur Katla, Hrönn, Valgerður Bára, Sóley Arna, Rósa, Arndís Dóra, Embla Katrín, Birta María
Ef ég gleymi einhverri eða ef þið getið ekki mætt þá endilega hafið samband við mig í síma 8473291 - það gæti s.s. gerst að ég þurfi að færa einhverjar til ef mæting er ekki góð. 
Síðasta æfing fyrir jólafrí er svo á laugardaginn í Víðistaðaskóla og þá mega mamma og pabbi vera með á æfingu. Þá mætir fyrri hópurinn kl. 12 - 13 (þær sem mæta kl. 5 á þriðjud.) og seinni hópurinn mætir kl. 13 - 14 (þær sem eru í hópnum kl. 6 á þriðjud.)
Eftir þessa æfingu tökum við okkur smá frí því allir eru orðnir svo uppteknir við jólaundir-búninginn en svo byrjum við aftur á fullu laugardaginn 7. janúar í Víðistaðaskóla.